skilmalar

SKILMÁLAR OG REGLUR FYRIR FARÞEGA – BORGARBÍLASTÖÐIN EHF.

Borgarbílastöðin ehf. – Skilmálar (gildir frá 1. janúar 2026)


1. Inngangur

Þessir skilmálar gilda um allar ferðir og þjónustu sem veitt er af Borgarbílastöðinni ehf. Með því að bóka ferð eða nýta þjónustu samþykkir farþegi þessa skilmála.

Þjónustan fer fram samkvæmt íslenskum lögum, reglugerðum og öryggiskröfum.


2. Bókanir og staðfesting

  • Bókanir eru teknar á móti í gegnum vefsíðu, bókunarform, tölvupóst eða síma.
  • Bókun telst staðfest þegar farþegi hefur fengið staðfestingarpóst eða SMS frá stöðinni eða bílstjóra.
  • Farþegi ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar, svo sem nafn, símanúmer, fjölda farþega, tímasetningu, brottfararstað og áfangastað.
  • Ef upplýsingar eru rangar getur það haft áhrif á verð, tíma eða framkvæmd ferðar.

3. Verð og gjaldskrá

  • Verð er reiknað samkvæmt gjaldskrá Borgarbílastöðvar 2026, sem birt er á vefsíðunni.
  • Í verði eru meðtalin gildandi km-gjöld, tímagjöld og upphafsgjöld, auk allra viðeigandi taxta, þar á meðal dag-, nætur- og stórhátíðartaxta.
  • Sérgreiðslur, svo sem aukastopp, biðtími eða stærri bílar, geta haft áhrif á lokaverð ferðar.
  • Ferðir geta verið annað hvort keyrðar eftir gjaldmæli eða samkvæmt fyrirfram samþykktu verði. Slíkt verð er alltaf staðfest áður en ferð hefst.
  • Verð sem reiknivél á vefsíðunni sýnir er áætlað verð og getur breyst í samræmi við raunverulegan aksturstíma, umferð og aðstæður.
  • Endanlegt verð miðast við gjaldmæli nema annað hafi verið sérstaklega samið fyrirfram.
  • Gjaldmæling fer fram í samræmi við gildandi lög og reglur um leigubifreiðar og eftirlitskröfur stjórnvalda.
  • Gögn frá gjaldmæli og staðsetningarbúnaði (GPS) eru notuð til að tryggja rekjanleika, öryggi og réttmæta verðlagningu ferða.
  • Þessi gögn geta verið notuð til staðfestingar á framkvæmd ferðar ef ágreiningur kemur upp.
  • Biðtími getur verið gjaldfærður samkvæmt gjaldskrá ef farþegi mætir ekki á réttum tíma eða tafir verða af hans völdum.

4. Afbókanir og breytingar

Afbókanir af hálfu farþega:

  • Afbókun innan 2 klukkustunda fyrir brottför getur haft í för með sér gjald samkvæmt gjaldskrá.
  • Afbókanir á KEF-ferðum þurfa að berast að lágmarki 3 klukkustundum fyrir bókaða tímasetningu.

Afbókanir af hálfu Borgarbílastöðvarinnar:

  • Ef bíll bilar eða aðrir ófyrirséðir atburðir koma upp mun stöðin tilkynna farþega eins fljótt og auðið er og reyna að útvega annan bíl.
  • Ef ekki er hægt að uppfylla ferð af hálfu Borgarbílastöðvarinnar fer engin greiðsla fram.

Breytingar:

  • Farþegi getur óskað eftir breytingum, svo sem á tíma eða fjölda farþega.
  • Verð og framboð fara eftir stöðu á þeim tíma sem breyting er óskað.

5. Flugferðir (KEF) – sérreglur

  • Farþegi skal gefa upp rétt flugnúmer til að tryggja að bílstjóri fylgist með komutíma.
  • Bílstjóri bíður í allt að 45 mínútur frá lendingu, nema annað sé sérstaklega samið.
  • Ef ferð dregst vegna flugtöfar er ekki rukkað fyrir afbókun, heldur aðlagar stöðin tímann að komutíma vélarinnar.
  • Ef farþegi mætir ekki innan eðlilegs tíma getur verið innheimt gjald fyrir bíl eða „no-show“.
  • Seinkanir á flugi sem eru utan stjórnunar Borgarbílastöðvarinnar geta haft áhrif á biðtíma og verð.

6. Skyldur farþega

  • mæta á réttum stað og tíma
  • sýna kurteisi gagnvart bílstjóra
  • nota öryggisbelti
  • veita réttar upplýsingar
  • passa upp á eigur sínar

Borgarbílastöðin ber ekki ábyrgð á týndum, gleymdum eða skemmdum munum nema sannað sé að starfsmaður hafi valdið tjóni af gáleysi.


7. Skyldur bílstjóra

  • aka samkvæmt umferðarlögum
  • tryggja öryggi farþega
  • viðhalda hreinlæti og fagmennsku
  • fylgja gjaldskrá og reglum
  • aðstoða farþega eftir þörfum

8. Greiðslur

  • Greitt er samkvæmt mæli eða áður samþykktu verði.
  • Greiðsla skal fara fram í lok ferðar nema annað hafi verið sérstaklega samið.
  • Greiða má með reiðufé, korti, reikningi fyrir fyrirtæki eða öðrum samþykktum rafrænum greiðsluleiðum.
  • Fyrirtækjabókanir geta krafist fyrirframgreiðslu eða greiðslutryggingar.
  • Öll verð eru með virðisaukaskatti (VSK) samkvæmt gildandi lögum.

9. Sérstakar óskir

Ef óskað er eftir barnabílstól, aukarými, miklum farangri eða annarri sérþjónustu skal taka það fram í bókun. Ekki er hægt að ábyrgjast slíkt nema það sé staðfest fyrirfram.


10. Ábyrgð og tjón

  • Fyrirtækið ber ábyrgð samkvæmt íslenskum lögum og tryggingum.
  • Ekki er borið ábyrgð á töfum vegna umferðar, lokana, veðurs eða annarra aðstæðna sem eru utan stjórnunar fyrirtækisins (force majeure).
  • Tjón eða ábendingar skulu tilkynnt innan 24 klukkustunda.
  • Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem töfum eða afleiddum kostnaði.

11. Trúnaður og persónuvernd

Vinnsla persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Borgarbílastöðvarinnar, sem birt er á vefsíðu fyrirtækisins.

Engar upplýsingar eru afhentar þriðja aðila nema til að framkvæma bókun eða samkvæmt lögum.


12. Kvartanir og ágreiningur

Kvartanir og fyrirspurnir skulu sendar á:

kvartanir@borgarbilastodin.is

Ágreiningur skal leystur með samkomulagi. Takist það ekki má skjóta málinu til Kærunefndar vöru og þjónustukaupa eða dómstóla samkvæmt íslenskum lögum.


13. Breytingar á skilmálum

Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa skilmála hvenær sem er. Ný útgáfa birtist á þessari síðu og gildir frá birtingardegi.